Prófnefnd leigumiðlunar
Samkvæmt reglugerð um leigumiðlun nr. 675/1994 skipar ráðherra prófnefnd leigumiðlunar sem hefur yfirumsjón með prófum er staðfestir að þeir er gengist hafa undir prófið uppfylli skilyrði fyrir veitingu leyfis til leigumiðlunar, að þeir hafi góða þekkingu á húsaleigulögum, lögum um húsaleigubætur, lögum um fjöleignarhús, kunnáttu í bókhaldi ásamt hagnýtum atriðum sem reynt getur á við leigu húsnæðis, svo sem gerð umboða, þinglýsingu og um skuldbindingargildi samninga.
Prófnefndina skipa
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, lögmaður, formaður
- Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur
- Eiríkur Benónýsson, viðskiptafræðingur
Skipunartími er til og með 10. október 2025.