Fastanefnd á sviði happdrættismála
Nefndin var sett á stofn í júní 2007. Störf hennar skulu einkum vera:
1. Að fylgjast með þróun í Evrópurétti á sviði happdrættismála.
2. Að gera tillögur til ráðherra um framkvæmd vísindarannsókna um spilafíkn, ólögleg fjárhættuspil o.fl.
3. Að gera tillögur til ráðherra um réttarbætur á sviði happdrættismála.
Nefndina skipa:
- Eyvindur G. Gunnarsson, tilnefndur af Happdrætti Háskóla Íslands, og er hann formaður nefndarinnar
- Fanney Óskarsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu
- Þorsteinn Þorkelsson, tilnefndur af Íslandsspilum
- Lárus Blöndal, tilnefndur af Íslenskri getspá, varamaður hans er Sigurbjörn Gunnarsson
- Valgeir Elíasson, tilnefndur af Happdrætti DAS og Guðmundur Löve, tilnefndur af Happdrætti SÍBS.