Starfshópur um húsnæðismál endurhæfingarstofnana
Hlutverk hópsins verður að móta heildstæða stefnu í húsnæðismálum endurhæfingarþjónustu og að skoða leiðir til fjármögnunar á viðhaldi húsnæðis sem hýsir slíka þjónustu, en í þjónustusamningum Sjúkratrygginga Íslands við veitendur endurhæfingarþjónustu er ekki gert ráð fyrir leigu- eða viðhaldskostnaði á húsnæði sem hýsir þjónustuna.
Óskað var eftir tilnefningum í hópinn frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Sjúkratryggingum Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Starfshópinn skipa
- Angela G. Eggertsdóttir, án tilnefningar, formaður hópsins
- Sigurjón Norberg Kjærnested, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Júlíana H. Aspelund, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands
- Hrafn Hlynsson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneyti
- Selma Margrét Reynisdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneyti
Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu er starfsmaður hópsins.
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 30. janúar 2024. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. nóvember 2024.